Raða og leita að forpöntunum
Sjálfgefið er að forpantanalistinn sé flokkaður eftir nýjustu efst. Hægt er að raða listanum í hækkandi eða lækkandi röð með því að smella á textann eða samsvarandi ör fyrir eftirfarandi flokka:
- Pre-Ordered Date (forpöntunardagsetning)
- Pre-Order Number (forpöntunarnúmer)
- Patient ID (auðkenni sjúklings)
- Status (staða)
- Surgeon (skurðlæknir)
Til að leita að ákveðinni forpöntun skal nota leitarreitinn og nota breytuna Pre-Order number (forpöntunarnúmer). Á síðunni birtist forpöntun sem passar við breytuna sem var notuð.

Aðgangur að síðum með ítarupplýsingum
Forpantanaflipinn inniheldur textatengla sem hægt er að smella á til að skoða ítarlegri upplýsingar um forpöntun, upplýsingar um sjúkling, **pöntunarupplýsingar ** (ef við á) og upplýsingar um skurðlækni.

Hnappar:
1. Export (flytja út): Excel-skýrsla með forpantanalistanum búin til 2. Checkout (ljúka kaupum): opnar núverandi innkaupakörfu 3. Hjálp: veitir aðgang að leiðbeiningunum sem leiðbeina um notkun Stella™ ICL-skipulagskerfisins og reiknivélarinnar 4. Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni: velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan lækni 5. Sign out (útskráning): skráir þig út af núverandi reikningi 6. Síðunúmer: Flettu í gegnum mismunandi síður forpantana með því að smella á númer síðunnar eða örvarhnappana

Stöðuvísar
Stöðuvísir sýnir núverandi stöðu forpöntunarinnar. Möguleg staða forpantana er:
- Pre-Order (forpöntun): forpöntunin tókst og var send til dreifingaraðilans
- In Cart Pre-Order (forpöntun í körfu): sem stendur er dreifingaraðilinn þinn með forpöntuðu vöruna í innkaupakörfunni sinni og hægt er að ganga frá pöntun
- Ordered (pantað): dreifingaraðilinn hefur pantað samkvæmt forpöntun þinni
- Canceled (hætt við): hætt var við forpöntun samkvæmt beiðni dreifingaraðila
Ath: Flipinn Pre-Orders (forpantanir) er aðeins í boði fyrir skurðlækna sem panta í gegnum dreifingaraðila.